05.01.07 - 18:02
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Watford fær til sín tvo leikmenn frá Rotherham (Staðfest)

Hoskins (til hægri) í leik með Rotherham

Mynd: Getty Images

Hoskins (til hægri) í leik með Rotherham

Mynd: Getty Images
Watford hafa gengið frá kaupunum á tveimur leikmönnum frá Rotherham, Will Hoskins og Lee Williamson, og skrifuðu þeir báðir undir þriggja og hálfs árs samning á Vicerage Road eftir að þeir gengust undir læknisskoðun.
Hoskins er hátt metinn í neðri deildunum eftir að hafa skorað sextán mörk á þessu tímabili og er talið að Watford hafi þurft að borga eina milljón punda fyrir leikmennina.
Þeir geta þó ekki spilað í ensku bikarkeppninni gegn Stockport um helgina, en geta þó spilað sinn fyrsta leik í deildinni gegn Liverpool helgina eftir. Það verður svo spennandi að sjá hvort þeir spjara sig á meðal þeirra allra bestu.

Heimild: Sky