Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 05. janúar 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
West Ham getur fengið Arnautovic aftur
Mynd: Getty Images
West Ham hefur fengið boð um að fá sóknarmanninn Marko Arnautovic aftur í sínar raðir frá Shanghai SIPG í Kína.

Arnautovic fór frá West Ham á 22,4 milljónir punda sumarið 2019 eftir að hafa skorað 21 mark í 59 leikjum með Hömrunum í ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 31 árs gamli Arnautovic er eins og margir aðrir leikmenn á förum frá Kína eftir að launaþak var sett á í úrvalsdeildinni þar í landi.

Ólíklegt þykir þó að West Ham fái Arnautovic aftur í sínar raðir þar sem launakröfur hans eru háar.
Athugasemdir
banner
banner