Fotbolti.net
05.02.08 - 10:21
Magnús Már Einarsson

Sam Tillen til Fram (Staðfest)

Sam Tillen í leik með Brentford.

Sam Tillen í leik með Brentford.

Canon

Mynd: Getty Images

Framarar hafa samið við enska varnarmanninn Sam Tillen og mun hann leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Tillen heitir fullu nafni Samuel Tillen en hann var síðast á mála hjá Brentford á Englandi.

Hann komst hins vegar að samkomulagi um að fá að fara frá Brentford tíunda janúar síðastliðinn eftir þriggja ára dvöl hjá félaginu þar sem hann skoraði eitt mark í 67 leikjum.

Tillen sem er 22 ára gamall spilar vinstra megin á vellinum, í stöðu bakvarðar eða kantmanns en hann hefur þó einnig leikið hægra megin og tímabilið 2005/2006 lék hann bæði sem hægri bakvörður og hægri kantmaður.

Hann var á mála hjá Chelsea frá 2002-2005 og lék þá með unglinga og varaliði félagsins.

Tillen er fimmti leikmaðurinn sem Fram fær til liðs við sig síðan tímabilinu lauk síðastliðið haust. Áður höfðu Framarar fengið Auðun Helgason úr FH, Jón Þorgrím Stefánsson úr HK, Halldór Hermann Jónsson úr Fjarðabyggð og Paul McShane frá Grindavík.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.