05.02.08 - 15:29
Hörður Snævar Jónsson
Benjani til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Benjani Mwaruwari hefur nú loks fengið félagaskipti sín til Manchester City í gegn.
Benjani skrifar undir tveggja og hálfs ár samning og þarf City að greiða Portsmouth 3,87 milljónir punda en sú upphæð gæti hækkað ef hann leikur 75 byrjunarliðsleiki með City.
,,Ég er ánægður með að hafa fengið svona gæðaleikmann og ég hlakka til að byrja strax að vinna með honum," sagði Sven Goran Eriksson stjóri Manchester City.
Benjani hefur verið frábær á þessari leiktíð og skorað 12 mörk í ensku úrvaldsdeildinni en hann getur núna leikið með Manchester City þegar liðið mætir grannaliðinu í Manchester United á laugardag.

Heimild: Sky