Amorim langt frá því að hætta - Wirtz fundaði með City - Ensk stórlið vilja Rodrygo
Arnór Borg um VÆB fagn Vestra: Daði var að cooka inn í klefa, Róa eitthvað
Dóri Árna: Ef maður misstígur sig einu sinni þá ertu búinn
Davíð Smári eftir magnaðan sigur: Þetta er fótboltaleikur, það eru tilfinningar
Haddi: Gerum glórulaus mistök
Rúnar Kristins: Baráttuandinn og viljinn til staðar
Sjáðu síðasta víti Stjörnunnar og stemninguna hjá Kára í Akraneshöllinni
Hektor Bergmann: Þetta er besta tilfinning í heimi
Jökull eftir sigur í vító: „Eigum sittera fyrir framan markið“
Alexander Aron: Hægt að fara með þennan leik upp í KSÍ og kenna hvernig á að spila fótbolta
Maggi: Fer ekkert ofan af því að það væri fínt að fá VAR til Íslands
Elmar Kári: Draumur að fá þann heiður að taka þátt í þessu verkefni
Pressa á Jóni Þór? - „Það er alveg klárt mál"
Venni sló á létta strengi: Evrópudraumurinn er farinn
Túfa: Að mínu mati eitt af þremur bestu liðunum í Lengjudeildinni
Oliver: Þrennan hefði mátt detta
„Það eru bara hærri hlaupatölur þegar við spilum við KR en önnur lið"
Óskar Hrafn: Í dag duttum við af hjólinu
„Veit ekki hvort að menn hafi haldið að þetta kæmi að sjálfu sér"
Brynjar Kristmunds: Þurftum að bera ákveðna virðingu fyrir því
Bjarni Jó: Heppnaðist illa og ég tek það á mig
   mán 05. febrúar 2018 22:35
Ívan Guðjón Baldursson
Þórir Guðjóns: Þetta var geggjaður leikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórir Guðjónsson skoraði öll mörk Fjölnis í 3-2 sigri á Fylki í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í Egilshöllinni í kvöld.

Þórir var ánægður að leikslokum og viðurkenndi að leikurinn hafi tekið mikið á.

„Þetta var geggjaður leikur og það var virkilega gaman að vinna Fylki. Þeir eru með hörkulið og við þurftum að hafa fyrir sigrinum," sagði Þórir við Fótbolta.net.

„Ég er gríðarlega sáttur og liðið stóð sig vel. Þetta er gott fyrir sjálfstraustið en ég er ekki búinn að setja mér nein markmið fyrir sumarið."

Þórir segist vera sáttur með Ólaf Pál Snorrason, nýjan þjálfara Fjölnis.

„Óli er toppþjálfari, ég er virkilega sáttur með hann. Það eru aðrar áherslur og öðruvísi æfingar heldur en í fyrra. Það er bara jákvætt að krydda þetta aðeins."
Athugasemdir
banner