Fotbolti.net
17.07.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tottenham hafnaði tilboði Newcastle

Tottenham hafnaði tilboði Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Tottenham hafnaði tilboði frá Newcastle í sænska miðjumanninn Lucas Bergvall. The Athletic greinir frá þessu.
Tilboðið hljóðaði upp á 46 milljónir punda en það er hærra tilboð en Tottenham hafnaði frá Nottingham Forest.

Öllum tilboðum í þennan tvítuga leikmann, þar á meðal hærri tilboðum, hefur verið hafnað af Tottenham. Sala til greina ef upphæðirnar ná þeim mörkum sem þeir telja viðeigandi.

Samningur Bergvall við Tottenham rennur út árið 2031 en hann hefur tjáð félaginu að hann vilji leita á önnur mið.

Newcastle seldi Sandro Tonali til Tottenham í sumar en missti af svissneska landsliðsmanninum Johan Manzambi sem samdi við Aston Villa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.