Fotbolti.net
17.07.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Umboðsmaður Salah: Veit ekki hvar hann mun spila

Umboðsmaður Salah: Veit ekki hvar hann mun spila
Canon

Mynd: EPA

Ramy Abbas Issa, umboðsmaður Mohamed Salah, hefur svarað sögusögnum þess efnis að hann sé á leið til tyrkneska félagsins Besiktas.

Franski miðillinn Foot Mercado greindi frá því að Egyptinn væri nálægt því að ná samkomulagi við tyrkneska félagið.
„Ég persónulega veit ekki hvar Mohamed mun spila á næsta tímabili. Hvað segir það ykkur," skrifaði Issa á X.

Hann skrifaði í morgun að það gæti komið í ljós mjög fljótlega hver áfangastaður Salah verður.

Salah er 34 ára gamall en hann yfirgaf Liverpool þegar samningur hans við félagið rann út. Salah hefur verið einn besti leikmaður heims undanfarin ár. Hann vann úrvalsdeildina tvisvar hjá enska félaginu, enska bikarinn einu sinni og Meistaradeildina einu sinni.

Hann skoraði 257 mörk í 442 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.