Fotbolti.net
17.07.26 - 22:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Deschamps: Vil ekki að neinn gráti

Deschamps: Vil ekki að neinn gráti
Canon

Mynd: EPA

Franska landsliðið mætir því enska í leik um bronsið á HM á morgun. Það verður síðasti leikur Didier Deschamps sem landsliðsþjálfari Frakklands.

Deschamps hefur stýrt liðinu frá 2012 en Frakkland varð heimsmeistari árið 2018 undir hans stjórn.
„Ég veit að þetta er síðasti leikurinn og ég vil ekki að neinn gráti, og ég held ekki að neinn hér muni gráta. Ég hafði þau forréttindi að ganga í gegnum ótrúlegar stundir og einnig erfiðari stundir, endirinn nálgast en lífið heldur áfram," sagði Deschamps.

„Ég veit ekki hvað gerist en ég er yfirleitt jákvæður maður og ég veit að þetta verður líka frábært. Franska landsliðið, með öllu sem það hefur í för með sér, er það fallegasta sem hefur komið fyrir mig.“

Franska goðsögnin Zinedine Zidane mun að öllum líkindum taka við af Deschamps.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.