Fjölnir hefur sótt spænska markvörðinn Arrate Juste Vidaurrazaga frá Extremadura til félagsins og mun hún leika með liðinu í 2. deildinni á komandi leiktíð.
Arrate er 27 ára gömul og kemur úr akademíu Athletic Bilbao sem er þekkt fyrir að framleiða öfluga markverði.
Hún hefur mikla reynslu og mun hjálpa til við að þróa unga og efnilega markverði félagsins.
„Við erum afar ánægð með að fá Arrate til liðs við okkur. Hún er reynslumikill markvörður sem eykur breiddina í þessari stöðu. Við höfum fylgst með henni undanfarið og teljum hana passa mjög vel inn í okkar leikstíl. Hún er róleg undir pressu, með góða sendingagetu bæði stuttar og langar sendingar, og les leikinn afar vel. Við erum með metnaðarfull markmið og teljum Arrate vera mjög mikilvægan hluta af púslinu fyrir næsta tímabil," sagði Veselin Chilingirov, þjálfari Fjölnis.
Athugasemdir



