05.03.05 - 13:43
Hafliði Breiðfjörð
Erik Gustavson skrifar undir hjá Fylki (Staðfest)

Gustavson skrifar undir samninginn í hádeginu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænski framherjinn Erik Gustavson skrifaði í dag undir samning við Fylkir í höfuðsstöðvum félagsins í Árbænum. Gustavsson er 23 ára gamall framherji sem kemur á láni frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Örgryte þar sem hann er samningsbundinn út þessa leiktíð.
Gustavson mun fá leikheimild strax og spila sinn fyrsta leik fyrir Fylki strax á morgun í Deildabikarnum gegn Breiðablik. Leikurinn fer fram í Egilshöllinni klukkan 17:00 og hvetjum við Fylkismennt il að fjölmenna og sjá þennan nýja liðsauka.
Gustavson er eins og áður sagði 23 ára gamall framherji. Hann hefur áður spilað á Íslandi en það var þegar hann kom hingað til lands með Örgryte í upphafi síðasta árs og lék með félaginu í Iceland Express mótinu í lok janúar. Hann skoraði fyrir sænska félagið í leik gegn KR og svo í úrslitaleiknum gegn ÍA með glæsilegu marki.
Við hittum Gustavson að máli eftir undirskriftina í dag og byrjuðum á að spyrja hann hvernig honum litist á að leika með Fylki næsta sumar:
,,Þetta virðist vera mjög gott félag og hér er gott fólk og liðið er gott og í raun allt í kringum félagið mjög gott. Mér líkar mjög vel við landið, hér er gott fólk."
Hjá Örgryte spilaði hann með þremur íslenskum leikmönnum, Atla Sveini Þórarinssyni sem mun leika með Val hér á Íslandi í sumar, Tryggva Guðmundssyni sem verður hjá FH og Jóhanni Birni Guðmundssyni sem er enn hjá Örgryte. Við spurðum Eric hvort hann hafi vitað eitthvað um íslenskan bolta áður en hann kom hingað nú:
,,Nei ekki mikið. Ég hef spilað í tvö ár með Atla Þórarinssyni hjá Örgryte. Hann sagði mér smá frá þessu en ég veit ekki mikið. Það verður öðruvísi en Svíþjóð, eitthvað nýtt. Ég ræddi við Atla og Jóhann Guðmundsson um félagið áður en ég kom hingað og ákvað að slá til."
Eric er nú kominn til landsins og mun hefja æfingar með Fylki á fullu. Fyrsta verkefni hans hjá félaginu er að leika í Deildabikarnum gegn Fylki á morgun.
,,Ég er kominn nú til Fylkis og verð hérna núna út tímabilið og fer ekki til Svíþjóðar í millitíðinnni. 15. mars fer ég svo með Fylki í æfingabúðir á Spáni."
Hann sagði að lokum að möguleiki sé á að hann framlengi samningnum sínum við Fylki eftir tímabilið en samningur hans við Örgryte rennur út í lok leiktíðarinnar í Svíþjóð.
,,Auðvitað vona ég að þetta verði fyrsta skreið í eitthvað stærra á ferlinum og því vona ég að ég geti spilað mjög vel hérna. Ég fer kannski aftur til Örgryte en ég er á síðasta ári samnigsins míns hjá félaginu og mun ljúka þeim samningi á láni hjá Fylki."
Gustavson er eins og áður sagði 23 ára gamall framherji. Hann hefur áður spilað á Íslandi en það var þegar hann kom hingað til lands með Örgryte í upphafi síðasta árs og lék með félaginu í Iceland Express mótinu í lok janúar. Hann skoraði fyrir sænska félagið í leik gegn KR og svo í úrslitaleiknum gegn ÍA með glæsilegu marki.
Við hittum Gustavson að máli eftir undirskriftina í dag og byrjuðum á að spyrja hann hvernig honum litist á að leika með Fylki næsta sumar:
| Gustavson ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni formanni Meistaraflokksráðs Fylkis í Fylkishöllinni í dag. |