Fotbolti.net
05.03.06 - 15:14
Magnús Már Einarsson

Jóhann Ingi lánaður til Fjarðabyggðar (Staðfest)

Úr leik Fjarðabyggð og Huginn í annarri deild síðastliðið sumar.

Úr leik Fjarðabyggð og Huginn í annarri deild síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ágúst Bjarni Guðmundsson

Fjarðabyggð úr annarri deild hefur fengið liðsstyrk en félagið hefur náð samning við HK um að fá miðjumanninn Jóhann Inga Jóhannsson að láni þar til í haust.
Jóhann Ingi sem er uppalinn fyrir Austan hefur verið að leika með Fjarðabyggð á Powerademótinu en hann hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin ár.

Alls hefur hann leikið 38 mótsleiki fyrir HK og skorað í þeim þrjú mörk en árið 2003 var hann valinn knattspyrnumaður félagsins.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.