05.03.08 - 08:45
Magnús Már Einarsson
Iddi Alkhag í HK (Staðfest)

Iddi Alkhag í HK treyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Iddi Alkhag í HK treyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur gert tveggja ára samning við danska framherjann Iddi Alkhag en þetta kemur fram á heimasíðu HK.
Alkhag sem er 29 ára gamall var á reynslu hjá HK í síðasta mánuði og skoraði meðal annars í æfingaleik gegn FH.
Hann átti upphaflega að koma til Víkings R. á reynslu en fór síðan til skoðunar hjá liði í Noregi áður en hann kom til HK.
Hann hefur spilað undanfarin tíu ár í tveimur efstu deildunum í Danmörku, með Esbjerg, Silkeborg og Frem. Árið 1999 var hann valinn besti leikmaður dönsku 1.deildarinnar.
Alkhag hefur leikið fimmtán landsleiki með U21 árs liði Danmerkur en hann lék síðast með Frem í lokaumferðunum í dönsku 1.deildinni á síðasta ári.
Alkhag kom hingað til lands í gærkvöldi og fái hann leikheimild í tæka tíð ætti hann að geta leikið gegn Fjarðabyggð í Lengjubikarnum næstkomandi sunnudag.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem HK fær í vetur en í lok janúar samdi félagið við króatíska miðjumanninn Goran Brajkovic og slóvenska framherjann Mitja Brulc og leikmannahópur liðsins er klár fyrir sumarið.
,,Nú erum við komnir með þrjá erlenda leikmenn sem við teljum að styrki liðið mikið og hópurinn fyrir sumarið er tilbúinn. Það verður afar spennandi að sjá hvernig nýju mennirnir falla inní hópinn en byrjunin lofar góðu," sagði Valdimar Hilmarsson í meistaraflokksráði við HK-vefinn.

Heimild: Heimasíða HK