Fotbolti.net
05.03.08 - 12:55
Hafliði Breiðfjörð

Leroy Lita lánaður til Charlton (Staðfest)

Leroy Lita er hér númer 16 á myndinni.

Leroy Lita er hér númer 16 á myndinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Charlton hafa fengið Leroy Lita fyrrum framherja U21 árs landsliðs Englands á láni frá Reading en samningurinn stendur aðeins í 28 daga.
Lita sem er 23 ára gamall skoraði 14 mörk fyrir Reading á síðustu leiktíð en hefur ekki náð að vinna sér sæti í liðinu á þessari leiktíð. Hann hafði meiðst skömmu áður en tímabilið hófst er hann var að teyja sig í rúminu.

Í síðustu viku fengu Charlton Scott Sinclair á láni frá Chelsea svo liðið er að styrkja sig vel fyrir lokabaráttuna í Championship deildinni.

,,Leroy hefur verið pirraður á fáum tækifærum með aðalliðinu upp á síðkastið," sagði Steve Coppell stjóri Reading á vefsíðu félagsins.

,,Lánssamningurinn gefur honum fullkomna leið til að komast í leikform með liði sem er meðal þeirra bestu í Championship deildinni."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.