Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Darmstadt unnu Paderborn 3-2 í þýsku B-deildinni í kvöld en liðið kom til baka eftir að hafa verið 2-1 undir þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum,.
Íslenski landsliðsmaðurinn var að sjálfsögðu í byrjunarliði Darmstadt og spilaði allan leikinn í kvöld en gestirnir komust yfir með vítaspyrnumarki frá Serdar Dursun á 19. mínútu.
Heimamenn í Paderborn jöfnuðu metin fimm mínútum síðar og komust svo yfir á 55. mínútu.
Darmstadt tókst að jafna metin á 68. mínútu og þegar fimmtán mínútur voru eftir af leiknum skoraði Dursun sigurmarkið.
Góður endurkomusigur Darmstadt staðreynd og liðið í 13. sæti með 28 stig.
Athugasemdir