Mohamed Salah var fullkominn í 7-0 stórsigri Liverpool á Manchester United á Anfield í dag. Sky Sports gefur honum fullt hús stiga eða 10 fyrir frammistöðuna en Bruno Fernandes, fyrirliði United, átti einn versta leik sinn í treyju félagsins.
Salah skoraði tvö mörk fyrir Liverpool og lagði þá tvö upp en þetta var hans langbesti leikur á tímabilinu.
Sky gefur honum 10. Cody Gakpo, Andy Robertson og Darwin Nunez fá allir 9 en enginn leikmaður í byrjunarliðinu fær undir 8.
Það er önnur saga með lið United. Bruno Fernandes, fær 2 frá Sky, en frammistaða hans í síðari hálfleik var ein sú versta síðan hann kom til félagsins frá Sporting.
David De Gea, Wout Weghorst og Luke Shaw fá þrjá. Enginn leikmaður í byrjunarliði United fékk hærri einkunn en 4.
Liverpool: Alisson (8), Alexander-Arnold (8), Konate (8), Van Dijk (8), Robertson (9), Elliott (9), Fabinho (8), Henderson (8), Salah (10), Nunez (9), Gakpo (9).
Varamenn: Jota (6), Bajcetic (7), Milner (6), Firmino (8).
Man Utd: De Gea (3), Dalot (4), Varane (4), Martinez (4), Shaw (3), Casemiro (4), Fred (4), Fernandes (2), Weghorst (3), Rashford (4), Antony (4).
Varamenn: McTominay (4), Garnacho (5), Malacia (5), Sabitzer (5).
Athugasemdir