Arsenal og Liverpool á eftir einum mest spennandi leikmanni HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal eru stórhuga á markaðnum í sumar og hafa nú þegar lagt margra mánaða vinnu í að kaupa eina af stjörnum heimsmeistaramótsins. Þetta segir belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri. Liverpool mun veita Lundúnafélaginu samkeppni um táninginn.
Síðustu mánuði hefur Arsenal átt í viðræðum við umboðsmenn hins 18 ára gamla Ayyoub Bouaddi, sem lék sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í gær.
Hann var einn af bestu mönnum vallarins þegar Marokkó gerði 1-1 jafntefli við Brasilíu, en aðeins nokkrar vikur eru liðnar síðan hann skipti um landslið eftir að hafa verið lykilmaður í U21 árs landsliði Frakklands.
Tavolieri segir að Arsenal vilji fá Bouaddi til félagsins og hafi lagt áherslu á að hann fengi stórt hlutverk í liðinu. Leikmaðurinn er sagður opinn fyrir því að fara til Englands.
Bouaddi leikur með Lille í Frakklandi, þar sem hann hefur verið að gera frábæra hluti, en talið er að Lille vilji fá í kringum 60 milljónir punda fyrir miðjumanninn unga.
Arsenal telur að sterkt samband félagsins við Olivier Létang, forseta Lille, eigi eftir að hjálpa til í viðræðunum. Ekkert mun þó gerast fyrr en eftir HM, sem lýkur í næsta mánuði.
Fabrizio Romano segir að Liverpool sé einnig með í baráttunni og að félagið sé í beinum samskiptum við Lille, auk þess að hafa fundað með umboðsmönnum leikmannsins.
Það er alveg ljóst að Bouaddi verður einn eftirsóttasti bitinn í sumar og eflaust munu fleiri félög koma inn í baráttuna á næstu vikum.