Fotbolti.net
15.06.26 - 09:27
Elvar Geir Magnússon

Arsenal í viðræðum um Bouaddi - City vill Branthwaite

Ayyoub Bouaddi.

Ayyoub Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Leikmenn sem eru í eldlínunni á HM eru skotmörk stórra félaga. Hér er slúðurpakkinn á þessum prýðilega mánudegi. BBC tók saman það helsta.
Arsenal hefur hafið viðræður um kaup á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi (18) hjá Lille sem hjálpaði Marokkó að gera 1-1 jafntefli gegn Brasilíu á sínum fyrsta leik á HM 2026. (Times)

Liverpool er einnig í viðræðum um Bouaddi auk þess sem Chelsea og Paris St-Germain hafa verið að fylgjast með leikmanninum. Hann myndi kosta að minnsta kosti 60 milljónir punda. (TalkSport)

Það gæti reynst erfiðara fyrir Bayern München að fá marokkóska sóknarmanninn Ismael Saibari (25) frá PSV Eindhoven eftir öflugt mark hans gegn Brasilíu á HM þar sem það hækkar líklega verðmiða hans. (Bild)

Jan Paul van Hecke (26) varnarmaður Brighton segir að framtíð sín ráðist eftir HM en Brighton hafnaði tveimur tilboðum frá Tottenham í hollenska landsliðsmanninn. (Sky Sports)

Manchester City hefur beint sjónum sínum að Jarrad Branthwaite (23) varnarmanni Everton til að koma í stað John Stones (32) sem er á útleið. Everton vill 70 milljónir punda fyrir Branthwaite. (Football Insider)

Roma hyggst gera 35 milljóna punda tilboð í enska sóknarmanninn Mason Greenwood (24) sem gæfi Marseille hluta af framtíðarsölu. (Corriere dello Sport)

Brasilíski miðjumaðurinn Ederson (26) átti að fara í læknisskoðun í gær en verið er að ganga frá skiptum hans frá Atalanta til Manchester United. (Corriere dello Sport)
Jarrad Branthwaite.

Jarrad Branthwaite.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.