Dele Alli stefnir enn á það að reyna að snúa aftur á fótboltavöllinn en hann æfir núna á æfingasvæðinu hjá Tottenham.
Dele, sem er 29 ára, er án félags en samningi hans við ítalska félagið Como var rift í september á síðasta ári. Hann lék aðeins einn leik fyrir liðið. Hann var á sínum tíma stórstjarna í boltanum og var orðaður við Real Madrid en hefur verið í vandræðum utan vallar.

Árið 2023 opnaði hann sig í viðtali og sagðist hafa verið misnotaður þegar hann var sex ára og hafi verið farinn að selja eiturlyf þegar hann var átta ára. Nýverið bárust fréttir af því að hann hefði tapað stórum fjárhæðum í spilavíti.
Alli stefnir þó á það að snúa aftur í fótboltann og fékk hann leyfi til að nota æfingaaðstöðuna hjá Tottenham þar sem hann gerði garðinn frægann á árum áður.
Athugasemdir