Fotbolti.net
05.04.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kjartani líður vel með pressuna - „Draumurinn að fara aftur út"

Kjartani líður vel með pressuna - „Draumurinn að fara aftur út"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Kári Halldórsson ræddi við Fótbolta.net í gær eftir 4-2 sigur liðsins á Þór í Mjólkurbikarnum. Hann hefur verið orðaður við atvinnumennsku og hann var spurður út í það.
Segir Kjartan verða að eiga fullkomið tímabil
TENGT EFNI

Segir Kjartan verða að eiga fullkomið tímabil

„Ég ætla bara að sjá hvað gerist, ég er ekkert að stressa mig. Ég er leikmaður FH í dag og auðvitað er draumurinn að fara aftur út. Ég ætla að fókusa á FH núna og svo vonandi gerist eitthvað," sagði Kjartan Kári.

Miklar breytingar hafa verið á FH í vetur og það hefur verið sett mikil pressa á Kjartan að standa sig vel.

„Mér líður vel með það. Ég veit að ég er með það góða leikmenn í kringum mig. Fólk er að velta því fyrir sér hver á að skora mörkin, eins og sást í dag voru allir mismunandi markaskorarar nema Adolf með tvö. Það sýnir að það geta allir skorað í þessu liði. Ég hef engar áhyggjur," sagði Kjartan Kári.

„Þetta er mikill orkubolti, við erum tilbúnir að hlaupa fyrir hvorn annan. Þetta virkar mjög vel fyrir okkur."

„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.