08.11.26 - 20:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neville: Hafa ekki hugmynd um hvað þeir eiga að gera

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gary Neville, fyrrum leikmaður Man Utd, segir að eigendur félagsins hafi ekki hugmynd um hvað þeir eigi að gera í stöðunni sem liðið er í.
Man Utd gerði jafntefli gegn Aston Villa í kvöld. Liðið hefur aðeins unnið einn deildarleik og situr í 18. sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu umferðir.

Neville segir að það muni ekki leysa nein vandamál að láta Michael Carrick fara.
„Þú getur haldið áfram að skipta um stjóra og hugsað að það sé svarið. En það hefur verið sannað með átta stjórum á tólf árum að það sé ekki svarið," sagði Neville.
„Carrick gæti farið, Carrick gæti verið áfram, við vitum það ekki, eigendurnir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eiga að gera. Þetta er stöðug endurtekning. Amorim, Ten Hag, Ole Gunnar Solskjær, Carrick, Mourinho, Van Gaal, Moyes, Ragnick. Einhverjir af þeim eru heimsklassa stjórar sem hafa náð árangri, það eru margir ungir og spennandi stjórar þarna, fyrrum leikmenn sem þekkja félagið líka."
„Ekkert af þessu hefur virkað því ef þú kaupir illa, ef þú ert með lélega frammistöðudeild, lélega ráðningardeild, ef þú ert ekki með sterka leiðtogahæfni í gegnum allan hrygg félagsins þá mistekst þér. Það eru raunveruleg vandamál innan þessa félags, það er fólk í þessum störfum sem hefur aldrei unnið þau áður í háttsettum stöðum.“