Fotbolti.net
09.11.26 - 10:25
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Benidorm

Andri Lucas á rosalegu flugi - „Kem mér núna í Íslands-gírinn“

Andri Lucas skorar og skorar.

Andri Lucas skorar og skorar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið hamförum með Blackburn á tímabilinu en hann skoraði í 2-1 sigri á West Ham um helgina. Andri hefur skorað 10 mörk í 14 leikjum og er næstmarkahæstur í Championship-deildinni.

Í viðtali við miðla Blackburn segir hann að nú fari öll einbeiting hans á íslenska landsliðið. Strákarnir okkar koma saman á Spáni í dag þar sem þeir verður í stuttum æfingabúðum áður en ferðast verður til Búlgaríu síðar í vikunni og leikið gegn heimamönnum í Plovdiv á föstudag.
Aldrei fleiri mætt með skotskóna í landsliðsverkefni?
TENGT EFNI

Aldrei fleiri mætt með skotskóna í landsliðsverkefni?

„Ég er í skýjunum, satt að segja. Ég held að við höfum virkilega þurft á þessu að halda sem hópur. við spiluðum virkilega vel þannig að við eigum þessi þrjú stig skilið," sagði Andri eftir sigurinn á West Ham.

„Við erum að vaxa sem lið og einstakir leikmenn eru að taka miklum framförum. Það sést vel á þessu tímabili og við viljum halda áfram að bæta okkur. Ég man ekki hvenær ég spilaði síðast á Ewood (Park heimavelli Blackburn) í svona stemningu. Það er frábært fyrir liðið að geta gefið stuðningsmönnunum eitthvað til baka."

Sé ekkert annað en markið
Andri er með sjálfstraustið í botni og er í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Blackburn.

„Ég er á virkilega góðum stað, bæði innan vallar og utan. Ég hugsa vel um sjálfan mig og líkamann. Ég legg mikla áherslu á endurheimt á milli leikja og vil gefa liðinu allt sem ég á á þessu tímabili; hvort sem það er með mörkum, stoðsendingum eða samspili. Ég vil bara leggja mitt af mörkum og virkilega að njóta þess að spila fótbolta núna."

Þegar boltinn berst til þín, hefurðu þá á tilfinningunni að þú sért að fara að skora um leið og hann kemur í áttina til þín?

„Já, þannig er tilfinningin. Þetta er dálítið sérkennilegt, eins og allir vita geta framherjar átt kafla þar sem þeim gengur illa að skora. En núna er þetta þannig að í hvert sinn sem boltinn dettur fyrir mig þá sé ég ekkert annað en markið og hvar ég á að setja boltannm og hann endar í netinu."

„Mér líður vel um þessar mundir, ég er sjálfsöruggur fyrir framan markið og ætla að reyna að taka það með mér inn í hvern einasta leik, og vonandi halda áfram að skora."

Það er landsleikjahlé framundan. Ég veit að þú ferð með íslenska landsliðinu í mikilvæga leiki en þegar þú kemur aftur þá er það stórleikur hér gegn Burnley.

„Það er farið að ræða þann leik aðeins inni í búningsklefanum. Ég hlakka virkilega til. Ég á auðvitað tvo leiki með Íslandi framundan sem ég mun einbeita mér að, koma mér í „Íslands-gírinn“, en þegar ég kem aftur þá hlakka ég svo sannarlega mikið til þess leiks," sagði Andri Lucas að lokum við miðla Blackburn.

Andri Lucas á rosalegu flugi - „Kem mér núna í Íslands-gírinn“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas á rosalegu flugi - „Kem mér núna í Íslands-gírinn“
Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Andri Lucas á rosalegu flugi - „Kem mér núna í Íslands-gírinn“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.