08.11.26 - 20:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ósáttur með jöfnunarmark Man Utd - „Reglur eru reglur"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Damian Vidagany, yfirmaður fótboltamála hjá Aston Villa, tjáði sig á X um dramatískt jöfnunarmark Patrick Dorgu í 4-4 jafntefli Man Utd og Villa í kvöld.
Dorgu skoraði með skalla eftir horn í blálokin en Vidagany fannst Senne Lammens, sem var kominn inn í teiginn, hafa brotið á Zion Suzuki.
Dorgu skoraði með skalla eftir horn í blálokin en Vidagany fannst Senne Lammens, sem var kominn inn í teiginn, hafa brotið á Zion Suzuki.
„Dómararnir sögðu við okkur í sumar að það væri ekki lengur leyfilegt að stugga við markverði inn í markteignum. Lammens er ekki að horfa á boltann og fór beint með mjöðmina í Zion," skrifaði Vidagony.
„Hafandi sagt það þá spiluðum við vel en við þurfum að gera betur en síðustu sex mínúturnar. Við munum gera það og bæta okkur. En reglur eru reglur og það þarf að virða þær. Það er staðreynd."
„Hafandi sagt það þá spiluðum við vel en við þurfum að gera betur en síðustu sex mínúturnar. Við munum gera það og bæta okkur. En reglur eru reglur og það þarf að virða þær. Það er staðreynd."
