09.11.26 - 11:19
Elvar Geir Magnússon
Læstu liðsrútuna inni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik milli Vitesse Arnhem og De Graafschap í hollensku B-deildinni var frestað af eftir að stuðningsmenn síðarnefnda liðsins komu í veg fyrir að liðsrútan gæti lagt af stað á leikinn.
Stuðningsmenn De Graafschap mótmæltu ákvörðun um að þeim væri bannað að mæta á leikinn en bannið var sett eftir að stuðningsmennirnir höfðu ekki fallist á öryggisráðstafanir sem gerðar voru,
Samkvæmt hollenskum fjölmiðlum söfnuðust stuðningsmenn De Graafschap saman fyrir utan heimavöll liðsins í Doetinchem snemma á sunnudag og komu í veg fyrir að rútan gæti farið af stað. Lásar voru settir á hlið við útgöngu frá vallarsvæðinu.
„Það er óásættanlegt ástand að leikur Vitesse og De Graafschap geti ekki farið fram. Að stuðningsmenn geri það ókleift að spila knattspyrnuleik er algjörlega óviðunandi,“ sagði hollenska fótboltasambandið í yfirlýsingu.
Vitesse hafði eftir samráð við lögreglu lagt til að stuðningsmenn gestaliðsins fengju aðeins 500 miða en það væri háð ýmsum öryggisskilyrðum, þar á meðal því að allt sem stuðningsmenn kæmu með þyrfti að fara í gegnum skoðun.

???? ????????????: The match between Vitesse and De Graafschap in the Netherlands has been POSTPONED after angry De Graafschap fans LOCKED the stadium gates with chains to STOP their own team's bus from leaving! ? https://t.co/MDafaINxHP
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) November 8, 2026