Fotbolti.net
05.04.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sláandi tölfræði hjá Van Dijk

Virgil van Dijk.

Virgil van Dijk.

Canon

Mynd: EPA

Miðvörðurinn Virgil van Dijk er líklega að eiga eitt sitt erfiðasta tímabil síðan hann gekk í raðir Liverpool.

Hann átti mjög svo slakan leik í gær þegar Liverpool tapaði 4-0 gegn Manchester City í enska bikarnum.
Van Dijk gaf vítaspyrnu í leiknum en um er að ræða fjórðu vítaspyrnuna sem hann gefur á þessu tímabili.

Það er sláandi tölfræði í ljósi þess að hann gaf fjórar vítaspyrnur á síðustu sjö tímabilum til samans áður en kom að þessu tímabili.

Erling Haaland skoraði úr vítaspyrnunni sem Van Dijk gaf í gær og það setti tóninn fyrir City í leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.