Fotbolti.net
05.04.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Svo á allt í einu á að reka hann núna?"

Arne Slot.

Arne Slot.

Canon

Mynd: EPA

John Barnes, goðsögn hjá Liverpool, telur að það sé ekki rétt ákvörðun að reka Arne Slot núna.

Slot hefur verið mikið gagnrýndur eftir frammistöðu Liverpool á tímabilinu og háværar raddir um að það eigi að reka hann. Barnes er hins vegar ekki sammála því.
„Við unnum deildina með Arne Slot og svo allt í einu á að reka hann núna?" sagði Barnes við Liverpool Echo.

„Segjum að Alonso komi inn og honum mistakist á fyrsta árinu, á þá að reka hann líka? Ég stend við bakið á stjóranum, hann er góður stjóri og það þarf að gefa honum tíma."

Liverpool féll úr leik í enska bikarnum í gær eftir 4-0 tap gegn Man City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.