05.05.08 - 17:12
Eyþór Ernir Oddsson
Mathieu Flamini til AC Milan (Staðfest)

Verðandi liðsfélagar, Flamini og Gattuso í baráttunni í Meistaradeildinni.

Mynd: Getty Images

Ítalska stórveldið AC Milan staðfesti í dag að Mathieu Flamini miðjumaður Arsenal hafi skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Þessi snjalli Frakki hefur leikið vel með Arsenal á leiktíðinni og hefur góð frammistaða hans komið nokkuð á óvart.
Samningur Flamini við Arsenal rennur út í sumar og því fer hann frítt til AC Milan en hann gat byrjað að ræða við önnur félög um síðustu áramót.
,,Ég er mjög ánægður, takk kærlega," sagði Flamini við fjölmiðla eftir að hafa staðiðst læknisskoðun og gengið frá samningum á Ítalíu í dag.
Flamini, sem er 24 ára, hefur leikið 39 leiki með Arsenal á leiktíðinni en hann hefur einnig verið orðaður við Juventus að undanförnu.