Heimir Guðjónsson: Þetta var tveggja rútu varnarleikur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH í Pepsi-deild karla, var nokkuð ánægður með stigið sem hann fékk gegn Breiðablik í Kaplakrika í kvöld.
Hólmar Örn Rúnarsson jafnaði metin eftir að Tómas Óli Garðarsson hafði komið Blikum yfir en Kassim Doumbia var nálægt því að sigla þremur stigum í hús í dag er hann stangaði boltann í tréverkið.
,,Já, kannski ekki í kasti en vonbrigði að fá ekki þrjú stig á heimavelli. Það voru forsendur fyrir því og mér fannst við betri í þessum leik. Lentum í basli fyrsta korterið og fengum á okkur mark en unnum okkur inn í leikinn eftir það,\" sagði Heimir í kvöld.
,,Það gekk nógu vel að nýta þau. Ég er ekki búinn að sjá þetta atvik og ég ætla ekki að tjá mig um þetta fyrr en ég er búinn að sjá það. Við fengum mörg góð færi en náðum ekki að nýta þau.\"
,,Þetta var tveggja rútu varnarleikur í boði. Mér fannst vera góð holning á liðinu og kannski hefði mátt vanda fyrirgjafirnar aðeins betur en þetta var pínu klaufagangur og smá ónákvæmni.\"
,,Mér var nú skítkalt á bekknum en hún var lítið að trufla okkur.\"
Kassim var að þreyta frumraun sína með FH en hann var einn af betri mönnum vallarins í kvöld og var Heimir afar ánægður með hann.
,,Mér fannst hann standa sig heilt yfir vel. Hann byrjaði rólega en vann sig inn í leikinn. Við sáum það að hann átti hörkuskalla í stöngina og hann á bara eftir að verða betri eftir því sem líður,\" sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.