Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 05. maí 2022 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes dúndraði næstum í boltastelpu: Boltinn skoppaði fullkomlega
Mynd: EPA

West Ham United var slegið úr Evrópudeildinni fyrr í kvöld og voru Hamrarnir ekki alltof sáttir með dómgæsluna.


David Moyes var rekinn útaf á 77. mínútu leiksins fyrir að dúndra boltanum í pirringi, en hann var næstum búinn að hæfa þýska boltastelpu í andlitið með skotinu.

„Ég verð að biðjast afsökunar fyrir að sparka í boltann en boltastrákurinn kastaði boltanum alltof stutt og hann skoppaði fullkomlega fyrir mig," sagði Moyes um rauða spjaldið að leikslokum.

Miklar líkur eru á því að Moyes verði sektaður og muni biðja boltastelpuna afsökunar á hegðun sinni.


Athugasemdir
banner
banner