05.06.06 - 06:40
Magnús Már Einarsson
Oddur semur við Esbjerg (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Miðjumaðurinn Oddur Ingi Guðmundsson úr Fylki hefur gert þriggja ára samning við danska liðið Esbjerg en liðin hafa einnig náð samkomulagi sín á milli um kaupverð.
Oddur sem er á sautjánda aldursári og því á yngsta ári í öðrum flokki mun stunda fullt nám í framhaldsskóla í Esbjerg samhliða fótboltanum á samningstímanum og fer hann til Danmerkur í næstu viku.
Á síðasta ári var Oddur í U-17 ára landsliði Íslendinga en hann kemur úr sigursælum árgangi hjá Fylki sem meðal annars varð Íslandsmeistari í fjórða flokki.
Á síðasta ári var Oddur í U-17 ára landsliði Íslendinga en hann kemur úr sigursælum árgangi hjá Fylki sem meðal annars varð Íslandsmeistari í fjórða flokki.
