Fotbolti.net
05.06.06 - 15:58
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Jan Koller til Monaco (Staðfest)

Á leiðinni til Monaco

Á leiðinni til Monaco

Canon

Mynd: Getty Images

Tékknesi landsliðsmaðurinn Jan Kolle skrifaði í dag undir tvegjja ára samning við Monaco. Koller, sem er 33. ára gamall, stóðst læknisskoðun áður en hann skrifaði undir samninginn.
Koller kemur á frjálsri sölu eftir að hafa klárað fimm ára samning hjá Borussia Dortmund. Hann skoraði á þeim tíma 57 mörk í þýsku Bundesligunni og 21 mark í Evrópukeppnunum.

,,Ég valdi Monaco af því að ég hafði staðfest boð frá þeim og einnig af því að þjálfarinn og stjórnin vildu fá mig. Þetta er eitt besta félagið í Frakklandi og þó að síðasta tímabil hafi ekki verið gott hjá þeim vill ég spila í Evrópukeppni með þeim,” sagði hinn 202 cm. hái Koller.

Kolle mun nú snúa aftur til Tékkneska landsliðsins sem eru í Prag að undirbúa sig fyrir Heimsmeistarakeppnina en þeir fara síðan til Þýskaland á miðvikudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.