Fotbolti.net
05.06.21 - 22:14
Victor Pálsson

Ekki spenntur fyrir því að mæta liðsfélaga sínum á EM

Ekki spenntur fyrir því að mæta liðsfélaga sínum á EM
Canon

Mynd: EPA

Kai Havertz er ekki spenntur fyrir því að mæta N'Golo Kante í fyrsta leik Þýskalands á EM alls staðar sem hefst 11. júní.
Havertz og Kante spila saman með Chelsea á Englandi og unnu Meistaradeildina saman á tímabilinu.

Þeir félagar gætu mæst í F-riðli þann 15. júní þegar Kante og félagar spila við Þýskaland.

„Þegar þú sérð Kante þá er ekki annað hægt en að brosa. Hann er með frbæran persónuleika og er frábær náungi," sagði Havertz.

„Hann er líka frábær í fótbolta. Sem sóknarmaður er alltaf ánægjulegt að spila með honum. Þú getur gert mörg mistök því hann vinnur alltaf boltann aftur."

„Það er því ekki svo gaman að þurfa að mæta honum í fyrsta leiknum á EM."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.