Aron Elí: Þessi lið finna alveg lyktina af okkur


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Blendnar tilfinningar" sagði Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar eftir 2-1 tap í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Aron Elí lagði upp eina mark Aftureldingar þar sem leikmaður Breiðabliks setti boltann í sitt eigið net á 78. mínútu.
„Ógeðslega pirrandi að vinna ekki bikarinn. Við ætluðum okkur að gera meira í þessum leik. Svo bara stoltur af stuðningsmönnunum, þvílíkur stuðningur sem við fáum úr Mosfellsbænum. Spilamennskan eiginlega heilt yfir frekar góð finnst mér."
„Ég vil meina að við séum að nálgast þessi lið á ógnarhraða núna. Við ætlum að vera en þá betri og við þurfum að gera meira til þess að vinna svona stóran titil, þessi lið finna alveg lyktina af okkur."
Fannst þér að Afturelding ætti meira skilið úr leiknum?
„Erfitt að segja það, við gefum þeim tvö föst leikatriði mörk hérna, einhverjir seinni boltar og léleg vörn hjá okkur. Það eru kannski einu skot þeirra í leiknum. Ef þú hugsar það þannig þá áttu meira skilið út úr tölfræðinni. Þegar þú ert komin tvö núll yfir í bikarúrslitaleik, þá er það svakalega erfitt að brjóta þá niður. Mér fannst við gera vel, skoruðum eitt og fengu góð færi til þess að skora annað, við hefðum kannski geta jafnað og gert eitthvað djúsí en það var ekki nóg í dag."
„Þetta var hörku leikur, það voru alvöru tæklingar í seinni hálfleik og við að reyna að sækja þetta. Við sýndum mikinn vilja, baráttu og trú, við höfðum allan tímann trú að við myndum koma til baka, meira segja í hálfleik."
Aron Elí var ánægður með stuðninginn í kvöld.
„Stuðningsmennirnir í Mosó eru bestir á Íslandi og hafa sýnt það aftur í dag, seldum upp nýju stúkuna og menn mættir í gömlu og ég veit ekki hvar og hvar. Ef við höldum áfram að standa okkur vel á vellinum þá verður þetta en þá stærri stuðningur á næsta ári. "


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
