Fotbolti.net
05.06.25 - 10:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arsenal selur Tavares til Lazio (Staðfest)

Arsenal selur Tavares til Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nuno Tavares er genginn í raðir Lazio frá Arsenal en vinstri bakvörðurinn var á láni hjá ítalska félaginu í vetur.

Það var kaupskylda í lánssamnngum og Lazio hefur gengið frá kaupunum.
Tavares kom við sögu í 30 leikjum í öllum keppnum í vetur og lagði upp níu mörk. Átta af stoðsendingunum komu í fyrstu átta byrjunarliðsleikjunum í deildinni.

Tavares er 25 ára Portúgali sem Arsenal keypti árið 2021 frá Benfica. Hann kom við sögu í 28 leikjum með Arsenal og skoraði eitt mark.

Arsenal fær 6-7 milljónir punda fyrir Tavares og prósentu af næstu sölu. Samningur hans gildir til sumarsins 2029.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.