Fotbolti.net
05.06.25 - 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gabri Veiga frá Al-Ahli til Porto (Staðfest)

Gabri Veiga frá Al-Ahli til Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Porto

Hinn 23 ára gamli Gabri Veiga stoppaði stutt í Sádi-Arabíu en hann er genginn til liðs við Porto frá Al-Ahli.
Veiga var harðlega gagnrýndur fyrir að ganga til liðs við Al-Ahli aðeins 21 árs gamall en það var mikill áhugi frá liðum í Evrópu á þeim tíma.

Hann gekk til liðs við Al-Ahli frá Girona á Spáni en hann er nú mættur aftur í Evrópuboltann og skrifaði undir fimm ára samning við portúgalska félagið.

Porto borgaði um 15 milljónir evra fyrir hann en hann gekk til liðs við Al-Ahli fyrir 40 milljónir evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.