Newcastle hefur tilkynnt að Antonio Cordero muni ganga í raðir félagsins 1. júlí þegar samningur hans við Malaga rennur út.
Cordero er 18 ára spænskur vængmaður sem er hluti af spænska U19 landsliðinu.
Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp níu í 60 meistaraflokksleikjum með Malaga sem endaði í 16. sæti spænsku B-deildarinnar í vetur.

Búist er við því að Cordero verði lánaður frá Newcastle á komandi tímabili.
Athugasemdir