Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 11:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Russell Martin tekinn við Rangers (Staðfest)
Russell Martin.
Russell Martin.
Mynd: EPA
Rangers, annað af tveimur stærstu félögum Skotlands, hefur staðfest ráðninguna á Russell Martin sem nýjum stjóra liðsins.

Martin, sem er 39 ára gamall, skrifar undir þriggja ára samning við Rangers.

„Það eru forréttindi að vera ráðinn sem nýr stjóri Rangers og fá að hefja hér nýjan kafla," sagði Martin.

Talið var að á endanum hafi valið staðið á milli hans og Davide Ancelotti, sem er sonur Carlo Ancelotti. Steven Gerrard var einnig orðaður við starfið.

Martin stýrði síðast Southampton og kom hann liðinu upp í ensku úrvalsdeildina, en þar gekk afar illa og var hann látinn taka pokann sinn fyrir nokkrum mánuðum.

Martin er með afar skemmtilega hugmyndafræði og spilar aðlaðandi fótbolta.
Athugasemdir
banner
banner