PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 12:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andy Robertson í Tottenham (Staðfest) - Kynntur af fyrrum fyrirliða sínum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tottenham tilkynnti í dag Andy Robertson sem nýjan leikmann félagsins. Hann verður formlega leikmaður félagsins 1. júlí. Í myndbandi Tottenham býður Michael Dawson, fyrrum fyrirliði Tottenham og bæði liðsfélagi og fyrirliði Robertson hjá Hull, hann velkominn til félagsins.

Robertson, sem er 32 ára vinstri bakvörður, kemur frá Liverpool á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Bítlaborgarfélagið rann út.

Robertson var í níu ár hjá Liverpool en hann var fenginn frá Hull. Hann var lykilmaður í liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeildina. Alls vann hann níu titla með Liverpool.

Hann er fyrirliði skoska landsliðsins sem er á leiðinni á HM. Atletico Madrid hafði áhuga á honum síðasta sumar og hann var orðaður við Juventus í lok síðasta mánaðar.

Tottenham var í fallbaráttu á þessu tímabili en hélt sér uppi með sigri á Everton í lokaumferð deildarinnar.




Slapp
banner
banner