PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
banner
   fös 05. júní 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Inter kaupir Stankovic til baka (Staðfest)
Aleksandar Stankovic er tvítugur.
Aleksandar Stankovic er tvítugur.
Mynd: EPA
Ítalska félagið Inter hefur nýtt sér ákvæði um að kaupa Aleksandar Stankovic aftur til félagsins fyrir 23 milljónir evra.

Stankovic er miðjumaður sem fæddist 2005 og hefur skrifað undir samning við Inter til 2030.

Aleksandar er sonur Inter goðsagnarinnar Dejan Stankovic og kom upp í gegnum akademíu félagsins.

Hann var seldur til Club Brugge í Belgíu fyrir 9,5 milljónir punda síðasta sumar. Í belgísku deildinni blómstraði leikmaðurinn og hjálpaði Club Brugge að vinna meistaratitilinn.

Hann skoraði níu mörk og átti fimm stoðsendingar í 55 mótsleikjum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner