PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
   fös 05. júní 2026 22:27
Viktor Ingi Valgarðsson
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Lengjudeildin
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hluti af 8.umferð Lengjudeildarinnar var leikinn í kvöld. Eitt af leikjunum var þegar topplið Aftureldingar fór til HK í Kórnum og niðurstaðan var 2-1 sigur heimamanna. Þetta tap stoppaði fimm leikja markaregns sigurgöngu Aftureldingar. 

Þeir eru þó ennþá á toppnum um þessar mundir en Fylkir og Þróttur eiga eftir að spila sína leiki.


Lestu um leikinn: HK 2 -  1 Afturelding

Aðspurður hvernig tilfinningin væri eftir leik hafði Magnús Már þjálfari Aftureldingar þetta að segja: „Súr, langt síðan við töpuðum leik þannig mjög súrt. HK voru öflugir í dag og áttu sigurinn skilinn að mínu mati, fannst við ekki nógu góðir og því fór sem fór."

Sigurmark HK kom uppúr hornspyrnu á 75.mínútu en á sama tíma var Afturelding að gera tvöfalda skiptingu, það leið nánast enginn tími frá því að spyrnan var tekinn og þessir tveir leikmenn voru komnir í teiginn til að verjast. Spurður hvort honum hafi fundist það hafa skipt sköpum hafði Magnús þetta að segja: „Ég á eftir að horfa á þetta aftur, það tekur tíma fyrir menn að komast inn í teig og við þurftum að gera skiptingu því tveir menn voru tæpir hjá okkur. Vorum að fá tvo stóra menn í teiginn, þannig jú ef að þeir taka spyrnuna of snemma þá er það náttúrulega svekkjandi. Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag."

Enes Þór Enesson Cogic var tekinn af velli eftir 36.mínútur en það var vegna meiðsla. „Hann var tæpur fyrir leikinn, vissum að hann myndi ekki ná að spila lengi vonuðumst lengur en þetta en hann þurfti að fá skiptingu."

Þegar rétt rúmar tíu mínútur voru eftir fékk leikmaður HK að lýta rauða spjaldið og Afturelding því manni fleirri en þeir náðu ekki að nýta sér það. „Fengum einhver færi, markmaðurinn þeirra gerði vel í að hirða crossa hjá okkur. Við hefðum þurft að vera aðeins klókari að komast í betri stöður. Strákarnir lögðu allt í þetta og trúðu því sem við ætluðum að gera, stundum er þetta svona."

Framundan hjá Aftureldingu er 8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum gegn Stjörnunni þann 10.júní.

„Nýtum þetta sem bensín og gera betur. Það er enginn spurning, held það sé bara spenna hjá öllum í hópnum. Sæti í undanúrslitum í boði og ég er viss um að við munum mæta með kassann úti og spila okkar besta leik á miðvikudaginn, engar áhyggjur af öðru."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner