Fotbolti.net
26.07.26 - 13:02
Brynjar Ingi Erluson

Bayern fullvisst um að halda Olise

Michael Olise verður áfram hjá Bayern

Michael Olise verður áfram hjá Bayern

Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru fullvissir um að halda franska vængmanninum Michael Olise áfram hjá félaginu.
Christoph Freund, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München, hefur vísað sögusögnum um áhuga Real Madrid á Michael Olise til föðurhúsanna.

Olise hefur verið orðaður við spænska stórveldið undanfarnar vikur en Freund segir brottför hans ekki koma til greina.

„Þetta er ekki til umræðu hjá okkur. Við erum hæstánægðir með að Olise sé kominn aftur úr fríi. Hann mun áfram gegna mikilvægu hlutverki hjá Bayern á komandi tímabili, rétt eins og hann gerði í fyrra,“ sagði Freund.

Real Madrid hefur ákveðið að gera ekki atlögu að Olise í sumar enda vill félagið halda góðu sambandi við Bayern.

Madrídingar ætla þess í stað að freista þess að fá Yan Diomande frá RB Leipzig og standa viðræður félaganna nú yfir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.