Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélagsins Hauka eftir átján ára fjarveru. Haukar tilkynntu um komu hennar heim í Hafnarfjörðinn á samfélagsmiðlum sínum - myndbandið má sjá neðst í fréttinni og í lok þess sést að Sara verður í treyju númer 77 hjá Haukum. Haukar munu svo klukkan 15:00 halda fréttamannafund í knatthúsi sínu.
Hún snýr til Hauka eftir að hafa spilað með Breiðabliki, Rosengård, Wolfsburg, Lyon, Juventus og síðast Al Qadsiah í Sádi-Arabíu.
Sara Björk (1990) er fyrrum landsliðsfyrirliði og næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 145 leiki. Hún fór með Íslandi á EM 2009, 2013, 2017 og 2022.
Hún vann Meistaradeild Evrópu bæði sem leikmaður Wolfsburg og Lyon. Hún varð sænskur meistari fjórum sinnum, þýskur meistari fjórum sinnum og einu sinni franskur meistari. Hún vann fjóra bikartitla í Þýskalandi, einn bikartitil í Svíþjóð, einn bikartitil í Frakklandi og árið 2023 varð hún bikarmeistari með Juventus á Ítalíu.
Haukar eru í toppsæti Lengjudeildarinnar með fullt hús eftir fimm leiki. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.