Fotbolti.net
05.07.06 - 16:34
Hafliði Breiðfjörð

Morientes til Valencia (Staðfest)

Morientes til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fernando Morientes komst í dag í gegnum læknisskoðun hjá spænska félaginu Valencia og í kjölfarið var gengið formlega frá félagaskiptum hans til félagsins frá Liverpool.
Morientes skrifaði undir þriggja ára samning við Valencia með möguleika á framlengingu til árs í viðbót. Talið er að Valencia hafi greitt 5 milljónir evra fyrir framherjann.

,,Ég hef verið mjög heppinn hjá hverju félagi sem ég hef spilað með og ég vonast til að ná að vinna titla fyrir Valencia og fyrir stuðningsmennina," sagði Morientes eftir að hann skrifaði undir.

Hjá Valencia má búast við að hann leysi framlínustöðuna ásamt David Villa sem skoraði 25 mörk fyrir liðið á síðustu leiktíð sem var hans fyrsta hjá félaginu.

Hjá Liverpool náði hann ekki að sýna sitt besta því hann skoraði aðeins 12 mörk í 61 leik á 16 mánaða tímabili. Hann er þrítugur og hefur skorað 26 mörk í 43 leikjum fyrir spænska landsliðið en var ekki í leikmannahópnum sem fór á HM í Þýskalandi.

,,Ég ætlaði að vera áfram hjá Liverpool en ef það hefði komið tækifæri til að fara þá hefði ég skoðað það. Að lokum var möguleikinn á að vera áfram eða að fara. Allt gerðist svo fljótt og núna get ég spilað fyrir frábært félag."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.