Fotbolti.net
05.07.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Mauro Esposito til Roma (Staðfest)

Mauro Esposito til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur gengið frá kaupunum á 50% í Mauro Esposito frá Cagliari en þessi 28 ára gamli leikmaður mun því spila með Rómverjum á næsta tímabili.
Esposito, sem var frá í sex mánuði á síðasta tímabili var einnig orðaður við Roma á síðasta tímabili en þá mistókst þeim að ganga frá kaupunum.

Esposito er annar leikmaðurinn sem Cagliari missir á stuttum tíma en David Suazo gekk til liðs við Inter Milan fyrir stuttu.

,,Að spila fyrir Roma með Francesco Totti er draumur að rætast. Ég mun leggja mig allan fram hjá þeim,” sagði Esposito á heimasíðunni sinni.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.