Fotbolti.net
05.07.07 - 16:15
Magnús Már Einarsson

Stefán Gíslason til Bröndby (Staðfest)

Stefán Gíslason til Bröndby (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Danska stórliðið Bröndby hefur keypt miðjumanninn Stefán Gíslason frá Lyn og hefur þessi knái leikmaður gert fimm ára samning við félagið.
Stefán sem er 27 ára hefur skorað tíu mörk í 80 leikjum með Lyn síðan hann kom til liðsins frá Keflavík árið 2005.

Stefán sem er íslenskur landsliðsmaður hefur leikið frábærlega með Lyn á þessari leiktíð og nú hefur Bröndby krækt í hann og mun hann hefja æfingar með danska félaginu á mánudaginn.

,,Ég er hæstánægður með að þetta sé loksins frágengið. Þetta er búið að vera langur vinnslutími á þessu og hefur haft áhrif á hausinn á manni," sagði Stefán við heimasíðu Bröndby.

,,Ég hef ekki verið í neinum vafa á neinum tímapunkti, því Brøndby hefur verið minn fyrsti kostur allann tímann, en það voru nokkrir hlutir sem þurftu að komast á hreint áður en gengið var frá þessu. Mér er mikið létt að þetta sé frágengið."

,,Ég hef einungis heyrt jákvæða hluti um Brøndby. Einn af stærstu klúbbum í Skandinavíu og með frábærar aðstæður. Bara að horfa á leikvanginn segir allt sem segja þarf,
sagði Stefán og skimar yfir Brøndby Stadion.

Heimild: Heimasíða Bröndby

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.