Fotbolti.net
05.07.18 - 21:57
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Vigfús: Mikil seigla í liðinu

Auglýsing
Vigfús Arnar í Leiknistreyjunni en hann þjálfar liðið í dag.

Vigfús Arnar í Leiknistreyjunni en hann þjálfar liðið í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara mjög ánægður með stigin þrjú,\" sagði Vigfús Arnar Jósepsson, þjálfari Leiknis, eftir 2-0 útisigur á Haukum í 10.umferð Inkasso deildarinnar.
„Við spiluðum góðan varnarleik en við höfum oft spilað betri fótbolta en bara gríðarlega mikil seigla í liðinu að skila þessum þremur stigum í hús.\"

„Uppspilið gekk vel svona á fyrstu tveimur þriðjungum vallarins en svo þegar við komum á síðasta þriðjunginn þá vantaði kannski svona að reka endahnút á sóknirnar til að búa til betri færi og skora kannski fleiri mörk.\"

„Ég er mjög ánægður með þróunina á liðinu og strákarnir hafa staðið sig bara mjög vel. Þetta er allt í rétta átt hjá okkur.\"

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.