Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 05. júlí 2020 19:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Mjög mikilvægur sigur fyrir Birki og félaga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Brescia og spilaði 83 mínútur í mikilvægum sigri gegn Hellas Verona í ítölsku úrvalsdeildinni.

Brescia tókst að knýja fram 2-0 sigur. Fyrra markið skoraði 18 ára gamall Andrea Papetti eftir sendingu frá undrabarninu Sandro Tonali sem mun eflaust fara í stórlið í Evrópu eftir þessa leiktíð. Það er miðjumaður sem vert er að fylgjast með í framtíðinni.

Alfredo Donnarumma gulltryggði svo sigurinn með marki í viðbótartíma.

Virkilega flottur og mjög mikilvægur sigur fyrir Íslendingalið Brescia sem spyrnir sér af botninum og er núna fimm stigum frá öruggu sæti. Það er enn möguleiki fyrir Birki og félaga.

Atalanta heldur áfram sigurgöngu sinni og er í fjórða sæti, stigi á eftir Inter, Fiorentina vann útisigur á Parma þar sem öll mörkin komu af vítapunktinum, Udinese vann Genoa og Sampdoria hafði betur gegn það sem núna er botnlið deildarinnar, Spal.

Cagliari 0 - 1 Atalanta
0-1 Luis Muriel ('27 , víti)
Rautt spjald: Andrea Carboni, Cagliari ('26)

Parma 1 - 2 Fiorentina
0-1 Erick Pulgar ('19 , víti)
0-2 Erick Pulgar ('31 , víti)
1-2 Juraj Kucka ('50 , víti)

Udinese 2 - 2 Genoa
1-0 Seko Fofana ('44 )
2-0 Kevin Lasagna ('73 )
2-1 Goran Pandev ('81 )
2-1 Andrea Pinamonti ('90 , Misnotað víti)
2-2 Andrea Pinamonti ('90 )

Brescia 2 - 0 Verona
1-0 Andrea Papetti ('52 )
2-0 Alfredo Donnarumma ('90 )

Sampdoria 3 - 0 Spal
1-0 Karol Linetty ('11 )
2-0 Karol Linetty ('45 )
3-0 Manolo Gabbiadini ('45 )

Önnur úrslit:
Ítalía: Andri Fannar spilaði í óvæntum sigri Bologna á Inter
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner