Fotbolti.net
05.07.26 - 22:46
Elvar Geir Magnússon

Sigurvíma í Osló - „Noregur getur unnið HM“

Flugeldar í Osló.

Flugeldar í Osló.

Canon

Mynd: EPA

Brasilía hefur aldrei unnið Noreg og það breyttist ekki í kvöld. Noregur hefur þrisvar sinnum unnið Brasilíu og þrisvar hafa viðureignir liðanna endað með jafntefli.

Í kvöld skoraði Erling Haaland tvívegis í 2-1 sigri Noregs gegn Brasilíu í 16-liða úrslitum HM. Norðmenn eru í sigurvímu og í höfuðborginni Osló er fagnað á götum úti.
HM: Haaland sendi Brasilíu heim
TENGT EFNI

HM: Haaland sendi Brasilíu heim

„Á góðum degi getum við unnið alla. Við höfum unnið fjóra í röð. Við getum unnið HM," segir Kjetil Rekdal, fyrrum landsliðsmaður Noregs. Rekdal skoraði gegn Brasilíu þegar Noregur vann viðureign liðanna á HM 1998.

Tore Andre Flo skoraði líka 1998, í 2-1 sigri Noregs.

„Við sigruðum Brasilíu með frábærum leik. Þetta var frábær frammistaða. Ef við getum þetta gegn Brasilíu þá getum við það gegn öllum liðum. Hver getur stöðvað manninn á toppnum?" segir Flo og er þá auðvitað að tala um Haaland.

Sigurvíma í Osló - „Noregur getur unnið HM“
Canon

Mynd: EPA

Sigurvíma í Osló - „Noregur getur unnið HM“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.