Fotbolti.net
24.08.26 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Chelsea vinnur aldrei deildina með Sanchez í markinu"

„Chelsea vinnur aldrei deildina með Sanchez í markinu"
Canon

Mynd: EPA

Robert Sanchez, markvörður Chelsea, hefur fengið mikla gagnrýni eftir frammistöðu sína í 3-2 sigri liðsins á Fulham í kvöld.

Joao Pedro kom Chelsea yfir eftir 30 sekúndur en Josh King jafnaði metin. Sanchez var illa staðsettur og King skoraði með skoti í nærhornið.
Gonzalo Garcia skoraði annað mark Fulham af stuttu færi eftir að Sanchez varði boltann út í teiginn.

„Chelsea vinnur aldrei deildina með Sanchez í markinu. Maður hugsar um liðin sem hafa unnið deildina hafa öll skipt um markmann. Pep Guardiola sótti Ederson, Alisson fór í markið hjá Liverpool. Arsenal hefði ekki unnið deildina með Aaron Ramsdale í markinu," sagði Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sport.

„Ein stærsta ástæða þess að Arsenal vann deildina er Raya. Þeir hefðu ekki unnið deildina án hans."

„Ég veit frá knattspyrnustjóranum sem ég spilaði undir að maður þarf að taka ansi grimmar og miskunnarlausar ákvarðanir. Ég tel að á næstu sjö eða átta dögum þurfi Alonso kannski bara að taka ákvörðun um að fá reynslumikinn markvörð, því hlutverk hans er að ná árangri hjá Chelsea," sagði Gary Neville.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.