Fotbolti.net
05.08.05 - 09:28
Hafliði Breiðfjörð

Borgetti til Bolton (Staðfest)

Borgetti til Bolton (Staðfest)
Canon
Bolton gengu í gær frá félagaskiptum mexíkóska framherjans Jared Borgetti eftir að hann gekkst undir læknisskoðun. Borgetti sem er 31 árs gamall gerði tveggja ára samning við Bolton sem greiða eina milljón punda í kaupverð til Pachuca í Mexíkó.
,,Ég get ekki beðið eftir að byrja, ég mun taka mér þrjár vikur í frí núna í hvíld og verð svo tilbúinn að láta til mín taka í úrvalsdeildinni," sagði Borgetti. ,,Þetta er mikill heiður fyrir mig að spila fyrir Bolton í sterkustu deild heims," bætti hann við.

Borgetti verður fyrsti Mexíkóinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann er markahæsti leikmaður Mexíkó frá upphafi með 35 mörk og mun án efa styrkja Bolton liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.