05.08.05 - 11:21
Hafliði Breiðfjörð
Pandiani til Birmingham (Staðfest)




Birmingham hafa loksins gengið frá 3 milljón punda kaupum á framherjanum Walter Pandiani frá Deportivo La Coruna. Pandiani sem er 29 ára gamall gerði í kjölfarið þriggja ára samning við félagið en hann var á láni hjá Birmingham á síðari hluta síðustu leiktíðar.
Birmingham hafa verið í viðræðum við Deportivo í allt sumar að kaupa Pandiani en eru bara nýlega búnir að ná samkomulagi. Eftir komu hans er framlína Birmingham nokkuð sterk, Michael Forssell, Emile Heskey, Clinton Morrison og svo Pandiani.
Pandiani skoraði 14 mörk fyrir Birmingham á síðsutu leiktíð.
Pandiani skoraði 14 mörk fyrir Birmingham á síðsutu leiktíð.
